Jóns

Óli Jóns

Hlaðvarp up sölu og markaðsmál

  • 54 minutes 27 seconds
    Haukur Guðjónsson Sundra
    Haukur Guðjónsson hjá Sundra í spjalli hjá Óla Jóns. Haukur er frumkvöðull af lífi og sál, í dag er hann með fyrirtækið sitt Sundra sem er tól til notkunar við vinnu myndbanda. Á vef Sundra sundra.io má meðal annars lesa þessa lýsingu "The Video Editors Assistant Sundra automates the most time-consuming parts of editing and gives video editors more time to focus on the creative part".
    7 May 2024, 12:29 pm
  • 53 minutes 17 seconds
    Auður Ösp Ólafsdóttir
    Auður Ösp Ólafsdóttir átti og rak ferðaþjónustufyrirtækið I Heart Reykjavík í áratug og byggði það upp með persónulegum sögum af landi og þjóð. Þar blandaði hún persónulegum frásögnum, á meistaralegan hátt, saman við fjölbreytileika íslenskrar menningar og náttúru. Nálgun hennar heillaði ekki aðeins ferðamenn alls staðar að úr heiminum heldur gaf hún einyrkjum og minni ferðaþjónustuaðilum von í harðri samkeppni við stærri fyrirtæki.
    15 March 2024, 12:49 pm
  • 1 hour 4 minutes
    Friðrik Guðjónsson Feed The Viking
    Í þessum þætti ræðir Óli Jóns við frumkvöðulinn og athafnamanninn Friðrik Guðjónsson stofnanda Feed the Viking. Friðrik er athafnamaður og frumkvöðull og ótal margt til lista lagt. Hann hefur komið víða við á lífsleiðinni. Hann hefur kennt á brimbretti á Hawaii, bjargað fólki úr lífsháska sem meðlimur í björgunarsveit og stofnað nokkur farsæl fyrirtæki, hér segir Friðrik sögu sína og frá hans hugmyndafræði á bak við velgengni. Friðrik vildi verða bankastarfsmaður eftir að hafa orðið fyrir miklum áhrifum af verðbréfamiðlurum Wall street. Hann byrjaði í verkfræði í Hí til að geta farið þaðan að vinna í banka en það var of mikið stökk frá framhaldsskólanum, það átti ekki við Friðrki að sitja í Þjóðarbókhlöðu að diffra. Friðrik segist svo hafa gefist upp á háskólanáminu keypt sér Playstation tölvu og ekki farið út úr húsi í tvær vikur. Friðrik skráði sig í viðskiptafræði 2003 hjá Háskóla Reykjavíkur og hóf nám þar um áramót, uppgvötvaði þar að hann gæti lært. Hafði gaman af að læra þar og kynntist mikið af góðu fólki. Útskrifaðist 2006 og fór í fyrsta atvinnuviðtalið á ævinni, fékk vinnu í banka, svo í verðbréfamiðlun. Friðrik er einnig með fyrirtækið the Optimistic food group sem framleiðir Happyroni eða vegan “pepperóní”. Friðrik var búinn í tvö ár að reyna að koma Fish Jerky til Icelandair án árangurs en þá kom fram á fundi að þau hefðu lengi verið búin að leita að kjötsúpu til að hafa í vélunum. “Við keyptum frostþurrkunarvél og fórum að framleiða frostþurrkaðar súpur meðal annars kjötsúpu sem Icelandair tók í sölu í vélunum sínum” Til varð ný vörulína af frostþurrkuðum mat sem Friðrik þekkti mjög vel áður úr björgunarsveitastarfinu. Eina sem þarf er heitt vatn, hræra og bíða í 8 mín. Að frostþurrka mat er aðferð sem hefur verið notuð frá aldamótunum 1800/1900 og var notuð í fyrri heimstyrjöld og mun meira í seinni heimstyrjöld. Allur matur sem fer í alþjóðlegu geimstöðina og allur hermannamatur er frostþurrkaður, þessi frostþurrkunar aðferð tekur langan tíma og er mjög kostnaðarsöm, en þetta er talin besta aðferð til varðveislu á mat í heiminum í dag. Best til að varan haldi næringargildi sínu. Varan missir rakann, en þegar þú bætir honum við er hún eins og hún var áður, eða ný. Frostþurrkaður matur varðveitist í 20 ár mögulega 50 ár. “Erum komin með 5 máltíðir, pakkaðar fyrir göngufólk og svo til að nota heima eða í vinnu, börn að koma svöng heim úr skóla, þetta á meðal annars að vera heilsusamlegur valkostur við núðlusúpuna.” Hjá Feed The Viking eru einnig framleitt frostþurrkað nammi sem slegið hefur í gegn hér á landi. Regnbogasprengjur sem er frostþurrkað Skittles er fyrsta varan í þeirri línu, þær fást hjá N1, Krónunni og í vefverslun feedtheviking.is.
    27 January 2024, 6:41 pm
  • 51 minutes 42 seconds
    Gulli Aðalsteinsson Cirkus
    Gestur minn í þessum þætti er Guðlaugur (Gulli) Aðalsteinsson hjá Cirkus. Við fórum um víðan völl í viðtalinu allt frá hænsnabúum að ÍMARK. Gulli hefur stússað ýmislegt í gegnum tíðina. Hann er alinn upp á hænsnabúi fyrstu ár ævinnar hjá mjög hugmyndaríkum foreldrum, hann hefur alltaf verið að teikna og eitthvað í tónlist, fór í nám í Bournemouth eftir að hafa valið skóla út frá töff brimbrettakappa. Hann hefur unnið á fjölmörgum auglýsingastofum og viðskiptavinir hafa fylgt honum á milli stofa. Hann stofnaði Cirkus ásamt þeim Hauki Viðari Alfreðssyni og Jens Nørgaard-Offersen árið 2020 Það voru settar þrjár reglur þegar Cirkus var stofnuð 1. Ætla ekki að vinna yfirvinnu 2. Taka ekki þátt í pitchum 3. Eftir hádegi á föstudögum eru alltaf frímínútur Þú getur heyrt meira um þessar reglur og önnur Cirkus-trix í spjallinu okkar.
    19 January 2024, 12:29 pm
  • 44 minutes 20 seconds
    Hörður Harðarson - Landsstjóri - Entravision Ísland
    Hörður kom í viðtal hjá Óla Jóns í nóvember 2017 í þætti númer 41. Í þessu viðtali fer Hörður yfir hvað Entravision sem er vottaður sölu- og þjónustuaðili fyrir Meta er, hvað þjónustu þau bjóða upp á osfrv. Hluti af þeim spurningum sem koma svör við í þessu viðtali. Hvað er Entravision? Hvað þjónusta er hjá Entravision? Hvað þarf ég til að vera viðskiptavinur Entravision? Þarf ég að verja lágmarksupphæð í birtingar? Afhverju kostar þjónusta Entravision ekki neitt, fæ ég svo reikning í bakið seinna? Tapa ég einhverju á að vera í viðskiptum við Entravision? Dekkun og tíðni, hvað er það? Á https://entravision-iceland.com/ segir um Entravision að þau séu Vottaðir sölu- og þjónustuaðilar Meta eru hluti af teymi Meta í völdum löndum á heimsvísu. Hjá þeim starfa sérfræðingar sem hafa verið sérstaklega valdir, þjálfaðir og vottaðir af Meta. Sérfræðingar okkar veita fyrirtækjum endurgjaldslausan stuðning og ráðgjöf, allt frá þarfagreiningu til stefnumótandi ráðgjafar. Vottaðir sölu- og þjónustuaðilar Meta hjálpa fyrirtækjum að ná markmiðum sínum, auka hæfni og árangur af markaðsstarfinu. Við Hörður vorum líka með leynigest sem stóð sig virkilega vel og var með mjög sterka innkomu, þökkum Ronju fyrir hennar hlutverk í þessu viðtali.
    5 October 2023, 3:40 pm
  • 55 minutes 47 seconds
    Margeir Haraldsson Arndal Lýðskólanum Flateyri
    Margeir Haraldsson Arndal Verkefnastjóri markaðs- og tæknimála hjá Lýðskólanum á Flateyri Í þessu viðtali ræðir Óli Jóns við Margeir Haraldsson Arndal um lífið á landsbyggðinni, um Lýðskólann á Flateyri, um skapandi hugsun, um markaðsmál og margt fleira. Margeir sem býr á Flateyri með sinni fjölskyldu starfar hjá Lýðskólanum á Flateyri við markaðssmál ásamt því að sjá um tæknimál skólans. Margeir er líka með önnur járn í eldinum s.s. framleiðslufyrirtæki með tvíburabróður sínum. Á vef Lýðskólans lydflat.is segir; Hvað er lýðskóli? Nám við lýðskóla er ólíkt því sem við eigum að venjast í hefðbundnum framhaldsskólum. Í lýðskóla fá nemendur og kennarar tækifæri til að vera við leik og störf og prófa sig við ólík viðfangsefni án þess að þurfa að sökkva sér niður í fræðilegar kenningar og skólabækur. Samtöl og samvinna, verklegt nám og vettvangsferðir eru lykilorð. Námsmat og endurgjöf í lýðskólum er ekki fengið með hefðbundnum prófum og einkunnum heldur í gegnum fundi og samtöl. Þetta gefur lýðskólum frelsi til að mennta og þroska nemendur með óhefðbundnum en árangursríkum leiðum.
    28 August 2023, 4:12 pm
  • 44 minutes 50 seconds
    Inga Hlín Pálsdóttir Framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins.
    Inga Hlín Pálsdóttir Framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins. Inga Hlín kom einnig í viðtal janúar 2021 þar sem við ræddum meðal annars áskoranir ferðaþjónustu fyrirtækja í Covid. Inga Hlín hefur undanfarin ár starfað sem alþjóðlegur ráðgjafi og fyrirlesari. Helstu verkefni hafa snúið að samstarfi fyrirtækja og opinberra aðila, stefnumótun, markaðssetningu, breytingastjórnun og sjálfbærni í tengslum við svæði og borgir. Hún hefur starfað með ýmsum aðilum í tengslum við ráðgjöf og má þar helst nefna Austurbrú, Reykjavíkurborg og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Samhliða starfaði Inga Hlín hjá norrænu ráðgjafarfyrirtæki á sviði þróunar, nýsköpunar og markaðssetningar svæða. Inga Hlín er með B.Sc. próf í viðskiptafræði frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst og M.Sc. próf í alþjóðamarkaðsfræði frá The University of Strathclyde í Skotlandi. Hún starfaði áður í yfir áratug hjá Íslandsstofu og Útflutningsráði, lengst sem forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina. Þar stýrði hún meðal annars kynningar- og markaðsstarfi á áfangastaðnum Íslandi í samstarfi við hagaðila og fór allt markaðsstarf fram undir merkjum Inspired by Iceland. Þá stýrði hún samstarfsverkefnunum Ísland allt árið og Iceland Naturally auk þess sem hún sat í stjórn NATA ferðamálasamstarfsins. Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins ses. var stofnuð 3. apríl 2023. Stofnendur stofunnar eru Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Ferðamálasamtök höfuðborgarsvæðisins. Að undirbúningi stofunnar komu sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og atvinnulífið í gegnum Ferðamálasamtök höfuðborgarsvæðinu, Samtök ferðaþjónustunnar og Samtök verslunar og þjónustu, auk þess sem stjórnvöld studdu við verkefnið. Eitt af hlutverkum Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins er að vera áfangastaðastofa fyrir höfuðborgarsvæðið. Skilgreining stjórnvalda á áfangastaðastofu er eftirfarandi: „Áfangastaðastofa (e. Destination Management Organisation) [er] svæðisbundin þjónustueining á vegum opinberra aðila og einkaaðila sem hefur það meginhlutverk að styðja við ferðaþjónustu í viðkomandi landshluta og tryggja að hún þróist í takt við vilja heimamanna þar sem sjálfbærni er höfð að leiðarljósi“.
    8 August 2023, 10:08 am
  • 1 hour 9 minutes
    Halldór Bachmann Kynningarstjóri hjá Almenna lífeyrissjóðnum
    Halldór Bachmann Halldór hefur frá mörgu áhugaverðu að segja og gerir það í þessu einlæga viðtali. Persónulegar áskoranir í lífi og starfi, hindranir og sigrar. Það er áhugavert að heyra Halldór segja frá vinnu sinni við vörumerki eins og MasterCard, IcelandAir, KEA, Sambandinu, Morgunblaðinu og mörgum fleirum.
    2 August 2023, 12:28 pm
  • 52 minutes 21 seconds
    Davíð Arnarson Datera SEO og Google Analytics
    Davíð Arnarson hjá Datera spjallar ma. um SEO og Google Analytics.
    10 July 2023, 10:42 am
  • 51 minutes 16 seconds
    Þorgils Sigvaldason
    Hér eru 5 viðtöl sem Óli Jóns tók á árinu 2022 og fyrir annan hlaðvarpsþátt en eru nú endurbirt hér. Guðrún Þórisdóttir, Gray Line Worldwide Helgi Pjetur, Púls Media Þorgils Sigvaldason, CrankWheel Gísli S Brynjólsson, Icelandair Arnar Gísli Hinriksson, Digido
    30 June 2023, 10:13 am
  • 42 minutes
    Helgi Pjetur
    Hér eru 5 viðtöl sem Óli Jóns tók á árinu 2022 og fyrir annan hlaðvarpsþátt en eru nú endurbirt hér. Guðrún Þórisdóttir, Gray Line Worldwide Helgi Pjetur, Púls Media Þorgils Sigvaldason, CrankWheel Gísli S Brynjólsson, Icelandair Arnar Gísli Hinriksson, Digido
    30 June 2023, 10:13 am
  • More Episodes? Get the App
© MoonFM 2024. All rights reserved.