Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Guðni Tómasson.

  • 52 minutes 47 seconds
    Tilfinningar í forn-norrænum ritum, leikhúsupplifanir í Borgarnesi og Finnlandi
    „Þegar nánar er að gáð þá finnum við hvernig tilfinningarnar ólga undir yfirborðinu, þó enginn hafi kannski beint orð á þeim,“ segir Brynja Þorgeirsdóttir, lektor við íslensku og menningardeild HÍ, en hún stendur, ásamt fleiri fræðimönnum, að nýlegu greinasafni sem hverfist um tilfinningar í forn-norrænum bókmenntum sem við fræðumst nánar um í þætti dagsins. Einnig segir Trausti Ólafsson frá sterkri leikhúsupplifun í Helsinki og Katla Ársælsdóttir rýnir í einleikinn Salka - ástin og dauðinn, sem sýndur er í Landnámssetrinu í Borgarnesi, í samstarfi við Þjóðleikhúsið.
    9 April 2026, 4:05 pm
  • 52 minutes 18 seconds
    Fuglar, eyjar og örnefni á Breiðafirði
    Þorvaldur Þór Björnsson hefur í rúma fjóra áratugi skrásett örnefni og fuglategundir við Breiðafjörð auk þess að teikna upp kort af eyjum og skerjum. Hann er í dag starfsmaður Náttúrufræðistofnunar en var það alls ekki þegar hann hófst handa við skráningarnar. Framan af var þetta stefnulaust áhugamál, sem hófst þegar hann taldi fuglategundir sem gutti á gúmmíbát við Reykjavík. Við tóku áralangar skráningar og teikningar, allt gert í hjáverkum einungis ánægjunnar vegna. Allt þar til Náttúrufræðistofnun sá hvaða gersemar Þorvaldur hafði undir höndum og var hann þá ráðinn í hlutastarf hjá stofnuninni. Við ræðum við Þorvald í þætti dagsins, en einnig heyrum við hluta úr gömlum viðtölum við Eystein Gíslason bónda í Skáleyjum.
    8 April 2026, 4:05 pm
  • 52 minutes 13 seconds
    Gáttir Benedikt Hjartarson, Haukur Þorgeirs #3, Töfrafugl/ rýni
    Við munum heyra í Benedikti Hjartarsyni prófessor í almennri bókemenntafræði og meningarfærði við háskóla íslands, en hann gaf nýverið út bókina Gáttir, heimsbókmenntir á Íslandi 1913-1943. Í Gáttum hugar Benedikt að áhrifum heimsbókmenntanna á íslenskt menningarlíf á fullveldis árunum. Mikil áhersla var lögð á að byggja upp íslenska nútímamenningu og liður í því verkefni var að kynna nýjustu strauma alþjóðlegra bókmennta fyrir íslensku lesendum. Soffía Auður Birgisdóttir rýnir í ljóðabókina Söngur tímafuglsins og fleiri ljóð, eftir Ægi Þór Jähnke. En við hefjum þáttinn á því að hverfa aftur til 11.aldar með Hauki Þorgeirssyni.
    7 April 2026, 4:05 pm
  • 50 minutes 44 seconds
    Fyrsti apríl
    Þáttur dagsins er tileinkaður aprílgabbinu. Rifjuð eru upp nokkur góð aprílgöbb, auk þess sem uppruni aprílgabbsins og skyldra hefða er kannaður.
    1 April 2026, 4:05 pm
  • 50 minutes 46 seconds
    Ísmús vefurinn, draumaíbúðir arkitektanema og Jötungíma kveður/rýni
    Víðsjá leit við í Listaháskólanum og ræddi við nema á fyrsta ári um arkitektúr framtíðarinnar. Þau Gylfi Halldórsson og Urður Ýr Þorsteinsdóttir segjast finna fyrir mikilli ábyrgð verandi í þessu námi og að þau séu að mörgu leyti sammála gagnrýnni umræðu síðustu missera um arkitektúr, þó margt sé vel gert. „Við vitum að við getum gert þetta vel, en það þarf að vera vilji fyrir því að borga fyrir góðan og fallegan arkitektúr. Ef við gefum okkur aðeins lengri tíma í hönnunina þá fáum við góðan arkitektúr í staðinn.“ Við kynnum okkur einnig Ísmús vefinn með yfirumsjónarmanni vefsins, þjóðfræðingnum og forritaranum Trausta Dagssyni. Og Katla Ársælsdóttir rýnir í leikverkið Jötungíma kveður sem leikhópurinn Díó sýnir í Elliðaárstöðinni.
    31 March 2026, 4:05 pm
  • 55 minutes 35 seconds
    Barrokkbandið Brák, Haukur Þorgeirs #2, Spaðar
    Reykjavík Early Music Festival er alþjóðleg barokkhátíð sem haldin er hér í Reykjavík, í þriðja sinn í ár, en þar leika íslenskir og erlendir hópar, sem sérhæfa sig í upprunaflutningi, tónlist frá miðöldum, endurreisnartímanum, barokktímabilinu og rómantíska tímanum. Opnunartónleikarnir fara fram annað kvöld í Hörpu og eru í höndum Barrokkbandsins Brákar og í þættinum lítum við inn á æfingu hjá bandinu. Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor við Árnastofnun, flytur í dag erindi um kvæðið Velleklu og hugarheim hirðskáldanna, og bendir á að dróttkvæði mætti líka kalla: óskiljanlega orðræðu í bergmálshelli hinnar menntuðu elítu. Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og tónlistarmaður, heimsækir einnig þáttinn og segir frá hljómsveitinni Spöðum sem hafa komið víða við á löngum ferli og munu stíga á stokk í Hilton Nordica í vikunni á Blúshátíð Reykjavíkur.
    30 March 2026, 4:05 pm
  • 52 minutes 19 seconds
    Unnur Ösp á Leiklistardaginn, Dáland og Afbygging stóriðju í Helguvík
    Unnur Ösp Stefánsdóttir, leikkona, leikstjóri og leikhöfundur flytur ávarp sitt í tilefni af alþjóðlega leiklistardeginum, sem haldinn er hátíðlegur á morgun, þann 27. mars. Við hugum líka að tónlist Purcell og samlanda hans, John Dowland og tónleikum þriggja tónlistarmanna undir yfirskriftinni Dáland, sem fara fram í Mengi annað kvöld Listamannateymið Libia & Ólafur Ólafsson opnuðu í febrúar 2024 sýninguna, Afbygging stóriðju í Helguvík. Við rifjum uppfjöllun um sýningina, þar sem svar við spurningu listamannanna og samstarfsaðila þeirra er komið, niðurrif Kísilverksmiðjunnar er hafið.
    26 March 2026, 4:05 pm
  • 52 minutes 45 seconds
    Bernd Ogrodnik / Svipmynd
    Bernd Ogrodnik er fæddur og uppalinn í Þýskalandi en hefur búið hér á landi frá árinu 1982. Hann heillaðist af veröld brúðuleikhússins á unga aldri og var snemma farinn að búa til sína eigin töfraheima. Hann ætlaði samt alltaf að verða tónlistarmaður og megnið af tímanum fór í að æfa sig á hljóðfæri, allt þar til að hann fékk nóg. Pressan í náminu og andrúmsloft eftirstríðsáranna í Þýskalandi þrengdu að og hann ákvað að leggja land undir fót. Við tóku nokkur ár af ferðalögum um heiminn og ýmiskonar lærdómur. Allt þar til hann endaði á Íslandi og ákvað að hann væri í raun brúðugerðamaður. Í dag er hann heimsþekktur brúðugerðamaður og margverðlaunaður fyrir sýningar sínar. Bernd trúir staðfastlega á umbreytingar og heilunarmátt listarinnar og þegar öll leikhús lokuðu í Covid ákvað hann að breiða boðskapinn út á annan hátt. Hann stofnaði brúðugerðaskólann Worlds of Puppets á netinu en það verkefni hefur óvænt sprungið út og tekur í dag nær allan hans tíma. Hann settist einnig niður á þessum tímamótum og skrifaði bók. Við heimsækjum Bernd í þætti dagsins.
    25 March 2026, 4:05 pm
  • 53 minutes 4 seconds
    Tolli Morthens, Gallerí Port og hugvekja Freyju Þórsdóttur
    „Í mínu innra landslagi var tilfinningin svoldið eins og landslagið sem ég er að mála, svona slepptu, treystu og leyfðu þér að bráðna, leyfðu þér að vera eins og vorið á Hrafntinnuskeri,“ segir Tolli Morthens um yfirstandandi málverkasýningu í gallerí Þulu, sem hann kallar Fingraför árstíða. Verkin vann hann eftir göngu að Fjallabaki með góðum hópi fólks úr jaðarsettri stöðu, en Tolli segist hafa óbilandi trúa á hjálpræðinu sem felst í ástríðufullu sambandi við Móður Jörð. Meira af því í Víðsjá dagsins. Við lítum einnig inn í Gallerí Port sem fagnar 10 ára afmæli í vikunni og heldur upp á það með nýjum verkum og tilkynningu um breytta tíma í Porti. Og einnig heyrum við hugvekju frá Freyju Þórsdóttur um hugarró og dómhörku.
    24 March 2026, 4:05 pm
  • 54 minutes 52 seconds
    Loji Höskulds í Köben, Vörumerkið Laxness, Haukur Þorgeirs pistill #1
    Myndlistarmaðurinn Loji Höskuldsson opnaði sýninguna Nágranna á dögunum í Kaupmannahöfn. Útsaumsverk Loga eru löngu orðin áhugafólki um myndlist hér á landi kunn en hann hefur á síðustu árum einnig haslað sér völl í Danmörku. Listamaðurinn segir aukna viðveru sína í konungsríkinu óneitanlega hafa haft áhrif á myndmál sitt en hann tvinnar hönnunarvörur saman við hversdagslega hluti neyslumenningarinnar í verkum sýningarinnar. Grétar Þór Sigurðsson hittir Loga í Köben í þætti dagsins. Og í dag tekur til máls nýr pistlahöfundur, Haukur Þorgeirsson, en hann er málfræðingur og rannsóknarprófessor við Árnastofnun. Haukur mun á næstu vikum ferðast með okkur um forna ljóðlist og fara vítt og breitt um hugarheim miðalda. Í sínum fyrsta pistli segir Haukur okkur frá Ragnarsdrápu, elsta kvæðið sem varðveitt er í íslenskum handritum. Og við ræðum við Gunnlaug Bjarnason um hönnun á bókverkum HKL og vörumerkið Laxness.
    23 March 2026, 4:05 pm
  • 51 minutes 55 seconds
    Tilfinningasteinar, Auðlindagarðar og Jón Nordal tónleikar Caput
    Samsýningin Auðlindagarðar fjallar um venslin á milli stóriðju og stafrænna innviða samtímans, þar sem stórar ákvarðanir um náttúruauðlindir eru teknar í sterílu skrifstofuumhverfi og sú náttúra sem flest okkar sjá er á skjáhvílum vinnutölvanna okkar. Listamennirnir, þau Agnes Ársælsdóttir, Hrafkell Tumi Georgsson, Sölvi Halldórsson og Eleni Iermia, vinna staðbundið inn í Slökkvistöðina, sem var áður hluti af Áburðarverksmiðju ríkisins. Við lítum þar við í síðari hluta þáttar. Tumi Árnason fjallar um nýafstaðna tónleika Caput hópsins í tilefni af 100 ára fæðingarafmæli Jóns Nordal. Og við komum við í Höggmyndagarðinum þar sem myndlistarkonan Ragnheiður Sigurðardóttir Bjarnason sýnir um þessar mundir skúlptúra sem hún kallar Tilfinningasteina, en þeir eru afsprengi rannsóknar hennar á tilfinningalegum orðaforða, sem hún segist ekki vera neitt sérstaklega góð í sjálf.
    19 March 2026, 4:05 pm
  • More Episodes? Get the App