Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Umsjón: Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

  • 44 minutes 47 seconds
    251 - Kosningar í Færeyjum og Danmörku og áhyggjur af einkalánum
    Samkvæmt okkar útreikningum voru samtals 4.308.068 Norðurlandabúar á kjörskrá í tvennum kosningum sem fóru fram í vikunni. Það var kosið í Danmörku á þriðjudag og í Færeyjum á fimmtudag. Við ætlum að kafa aðeins í úrslitin í báðum löndum, skoða kosningabaráttuna og fleira. Svo segjum við ykkur allt um einkalán sem valda sérfróðum á fjármálamarkaði talsverðum áhyggjum. Hætturnar í heimshagkerfinu eru æði margar um þessar mundir. Stríðið í Mið-Austurlöndum hefur keyrt verð á olíu og gasi í hæstu hæðir og hlutabréfamarkaðir um allan heim nötra. En þessir atburðir hafa dregið athyglina frá annarri undirliggjandi ógn sem ekki hefur farið jafn hátt en gæti, ef allt fer á versta veg, komið af stað heimskreppu eins og þeirri sem skók fjármálamarkaði árið 2008. Magnús Geir Eyjólfsson segir frá.
    28 March 2026, 12:40 pm
  • 50 minutes 33 seconds
    250 - Afmælisþáttur - hin hliðin
    Þátturinn í dag er afmælisþáttur en nú eru Heimskviðuþættirnir orðnir 250. Í tilefni dagsins segjum við sögur fólks sem við þekkjum vel, en gröfum upp hluti sem færri þekkja. Svo kynntumst við fleirum sem ekki eru eins vel þekktir, en ættu kannski að vera það. Við fjöllum um hundakallinn Lars Lökke Rasmussen, badmintonmeistarann Jens Frederik Nielsen, áhrifavald frá Gaza, næsta leiðtoga Norður-Kóreu og mann sem hefur verið kallaður George Clooney seðlabankanna. Það og margt fleira kemur í ljós í þættinum.
    21 March 2026, 12:40 pm
  • 38 minutes 10 seconds
    249 - Mannaveiðar með drónum og endurkoma Anthony Kim
    Íbúar í borginni Kherson í Úkraínu fara síður út þegar veðrið er gott. En þegar það er þoka, rigning og snjór má búast við að sjá fólk á gangi úti við. Og ástæðan? Skyggnið er verra og þá eru minni líkur á að fólk sé sært eða drepið af drónum Rússlandshers. Kherson er í suðurhluta Úkraínu, við ána Dnipro. Hinum megin við ána eru rússneskir hermenn sem herja á borgarbúa alla daga með drónum. Á drónunum er myndavél og sprengiefni. Sá sem stýrir dróna sér því hvert hann stefnir og viljandi er þeim beint að fólki á gangi úti, jafnvel börnum, og að bílum á ferð. Borgarbúar kalla þetta „human safari“ eða mannaveiðar. Það sé eins og Rússarnir séu á eftir almennum borgurum til að særa þá eða drepa. Dagný Hulda Erlendsdóttir fjallar um málið. Anthony Kim vann golfmót á dögunum. Kylfinga vinna golfmót vikulega, af hverju er þetta svona merkilegt? Jú kannski vegna þess að Anthony Kim hafði ekki unnið golfmót í að verða 15 ár. Hann var með þeim bestu þegar hann var yngri, rétt rúmlega tvítugur og hann átti framtíðina fyrir sér þegar hann meiddist. Þessi meiðsli höfðu gríðarleg andleg áhrif á hann og hann leiddist svolítið inn á ranga braut í lífinu og hætti alfarið að spila golf. Eftir rúman áratug af áföllum og neyslu nær hann sér aftur á beinu brautina og byrjar aðeins að fikta við golf aftur, þá með hvatningu konu sinnar og lítillar dóttur. En hann á langt í land með að geta orðið góður á nýjan leik. En rétt eins og hann sigraði fíknina þá náði hann að yfirstíga þessa miklu hindrun, að komast aftur í fremstu röð. Þannig þetta er ekki bara saga af einhverjum golfara, heldur þroska- og batasaga einhvers sem hafði gefist upp á lífinu. Og kannski sönnun þess að það sé hægt að snúa við blaðinu, jafnvel í verstu mögulegu aðstæðum. Oddur Þórðarson segir okkur söguna alla.
    14 March 2026, 12:40 pm
  • 42 minutes 5 seconds
    248 - Saga og samfélagið í Íran og flóttamenn þá og nú
    Íran er nú daglega í fréttum eftir að Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á landið fyrir viku síðan. Írönsk kona sem flúði heimalandið og hefur búið á Íslandi í fjögur ár segist vona að Íranar í Íran öðlist frelsi og frið og að þeir geti gengið til frjálsra kosninga. Fólk óski þess eftir harðstjórn klerkastjórnarinnar síðustu tæplega 40 ár. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir heyrði sögu hennar. Það eru tíu ár um þessar mundir frá því bylgja flóttafólks skall á ströndum og landamærum ríkja Evrópu; hundruð þúsunda voru þá á flótta frá borgarastríðinu í Sýrlandi og ógnarstjórn í öðrum ríkjum í leit að öryggi og betra lífi í Evrópu. Í mörgum ríkjum Evrópu hefur dregið úr samúð almennings með flóttafólki. Koma þeirra er talin vera ein af höfuðástæðum þess að vinsældir harðlínuflokka til hægri hafa aukist á undanförnum árum. Björn Malmquist skoðar þessa sögu með atburði vikunnar til hliðsjónar.
    7 March 2026, 12:40 pm
  • 45 minutes 32 seconds
    247 - Endalok Stranger Things og almannaþjónustumiðla í Bandaríkjunum
    Endalok verða rauður þráður í Heimskviðum í dag. Það eru vægast sagt umdeild endalok þáttaraðarinnar Stranger things, en óhætt að segja að það séu margir ósáttir við þau. Svo eru það möguleg endalok almannaþjónustumiðla í Bandaríkjunum. Það er stefna bandaríkjastjórnar að draga úr umfangi þessara miðla sem reka staðbundnar útvarps- og sjónvarpsstöðvar um öll Bandaríkin. Núna séu komnir fjöldi sjálfstæðra miðla og það sé ekki aðeins úrelt fyrirkomulag að ríkið fjármagni miðlana heldur spilli það fyrir sjálfstæðri blaðamennsku. Við tölum við Ingibjörgu Þórðardóttur sem er fyrrverandi fréttastjóri BBC og CNN í Bandaríkjunum. Hún segir umræðuna um að ríkismiðlar hafi of mikil áhrif á fjölmiðlamarkaðinn góða og gilda en hún eigi ekki við Bandaríkjunum. Almannaþjónustumiðlarnir, NPR og PBS, eigi ekki roð í stærstu einkamiðlana og hvarf þeirra hefði lítil eða engin áhrif á þá. En það myndi hins vegar gera fjölmiðlalandslandslagið bæði einhæfara og fátæklegra. Svo er það eitt helsta flaggskip Netflix-streymisveitunnar - Stranger Things. Aðdáendur þáttanna eru margir hverjir vægast sagt ósáttir við hvernig þættirnir enduðu. Sprottið hafa upp ýmsar samsæriskenningar meðal annars um hvort endalokin séu raunveruleg. Duffer-bræður, skaparar þáttanna, eru sagðir hafa misst boltann í blálokin - eða er þetta kannski bara snilldar markaðssetning? Það hlýtur alla vega að vera ákveðin snilld að fá fólk til þess að vera enn að tala um þættina og jafnvel að horfa á þá aftur og aftur, til að finna vísbendingar og lesa milli línanna.
    28 February 2026, 12:40 pm
  • 49 minutes 39 seconds
    246 - Trainspotting og óður til MTV
    Kvikmyndin Trainspotting er þrítug um þessar mundir. Hún kom fyrst í kvikmyndahús 23. febrúar 1996 og hefur síðan öðlast sess í kvikmyndasögunni og er að mörgum talin meðal bestu kvikmynda tíunda áratugarins. Myndin fjallar um vinahóp í Edinborg í Skotlandi sem er djúpt sokkinn í heróínneyslu. En Trainspotting er miklu meira en en saga af ógæfusömum vinum, eins og Dagný Hulda Erlendsdóttir komst að þegar hún spjallaði við Kevin Williamson. Hann var sá sem fyrstur gaf Trainspotting út, þá sem smásögur í menningartímariti. Hann segir að bókin og kvikmyndin hafi verið mikilvæg vopn í menningarstríði verkalýðsins í Skotlandi gegn elítunni í Bretlandi á tíunda áratugnum. Í því stríði hafi verkalýðurinn haft betur. Svo fjöllum við um sögu sjónvarpsstöðvarinnar MTV. Það bárust fregnir af því fyrir áramót að stöðin góðkunna væri að leggja upp laupana. Það er ekki alveg satt, en MTV er ekki svipur hjá sjón miðað við umfang og stöðu sem stöðin hafði eftir að hún var stofnuð árið 1981. Við ætlum að skoða sögu MTV og hvaða áhrif hún hafði á tónlistar- og kvikmyndaiðnaðinn.
    21 February 2026, 12:40 pm
  • 41 minutes 38 seconds
    245 - Sterar á Ólympíuleikum og þrengt að elítunni í Rússlandi
    Það hefur gengið á ýmsu á vetrarólympíuleikunum sem nú standa yfir. Játningar um framhjáhald, fótbrot og ásakanir um svindl og typpastækkanir er meðal þess sem hefur verið í umræðunni. Í þættinum ætlum við að fjalla um mál Sydney Milani sem var meinuð þátttaka á leikunum eftir að sterar mældust í henni. Hún þvertekur fyrir að hafa tekið stera og segir efnin hafa mælst í henni vegna kærasta hennar, hann hafi tekið stera og hún hafi annað hvort fengið efnin í sig eftir sopa af drykk sem hann blandaði eða með sæði úr kærastanum. Bjarni Pétur Jónsson skoðar þetta áhugaverða mál og ræðir við Birki Sverrisson, framkvæmdastjóra lyfjaeftirlitsins. Stjórnvöld í Rússlandi hafa kæft öll mótmæli gegn sér og allsherjarinnrásinni í Úkraínu. Fólk sem vogar sér að mótmæla á ekki von á góðu; hvort sem það eru almennir borgarar, hátt settir embættismenn eða auðmenn. Nokkur fjöldi þeirra þykir hafa dáið á dularfullan hátt síðustu ár, sumir eftir að hafa gagnrýnt árásir Rússlandshers á Úkraínu. Rússneskir milljarðamæringar eru fleiri en nokkurn tíma fyrr og þeir eru ríkari en áður. Embættismenn landsins, sem einnig teljast til elítunnar, óttast hvað gerist þegar stríðinu lýkur. Jafnvel þeir sem eru á móti allsherjarinnrásinni. Við skulum vinda okkur til Kremlar. Dagný Hulda Erlendsdóttir fjallar um málið.
    14 February 2026, 12:40 pm
  • 48 minutes 34 seconds
    244 - Átök innan Bandaríkjanna og Heated Rivalry
    Það er ekki skortur á umfjöllun um Bandaríkin og bandaríska ráðamenn í fréttum þessi misserin. Mest ber á ákvörðunum Bandaríkjastjórnar á alþjóðasviðinu en minna er fjallað um það sem er að gerast innanlands. Það hefur stundum verið talað um að ráðamenn í Bandaríkjunum séu flinkir í því að snúa athyglinni annað þegar erfið mál koma upp - hefja árásir eða stríð einhvers staðar til að draga athyglina frá þeim. Og við ætlum að fjalla um mál sem hafa kannski fallið í skuggann af stærstu fréttamálunum: bólusetningar barna, stríð gegn háskólum og krafa ríkisstjórnar Trumps um aðgang að upplýsingum um kjósendur. Ólöf Ragnarsdóttir fer með okkur til Bandaríkjanna. Einir vinsælustu og mest umtöluðu sjónvarpsþættir samtímans heita Heated Rivalry. Þessi fremur ódýra framleiðsla á sjónvarpsþáttunum sex hefur borgað sig svo um munar. Aðalleikararnir tveir eru orðnir stórstjörnur, annar þeirra verður gestgjafi í Saturday Night Live síðar í mánuðunum. Og þeir voru meðal kyndilbera fyrir Ólympíuleikana, sem hófust einmitt í gær. En þeir leika í þáttunum elskendur, sem eru tveir bestu íshokkíspilarar heimsins. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir segir okkur allt um þættina vinsælu og áhrifin sem þeir hafa haft.
    7 February 2026, 12:40 pm
  • 44 minutes 33 seconds
    243 - Nick Fuentes og pöndupólitík
    Nick Fuentes er kristinn þjóðernissinni og kynþáttahatari og vill að hvítir, kristnir karlmenn fari með tögl og hagldir í bandarískum stjórnmálum. Hann hefur sagst vera á móti lýðræði því það steypi saman ólíkum og ósamræmanlegum hagsmunum. Lýðræði leiði alltaf á endanum til þess að þjóðríkið bíði óafturkræfan skaða. Hann segist líka elska Hitler, hefur lagst gegn því að konur séu útivinnandi, talað vel um aðskilnað svartra og hvítra í Bandaríkjunum og hefur almennt spúið hatri sínu á öllum mögulegu þjóðfélagshópum og trúarhópum. En mögulega býr eitthvað annað að baki því. Hvað þýðir það að frægum stjórnmálaáhrifavaldi sé sama um að vera kallaður rasisti, nasisti eða eitthvað annað? Hvað þýðir það að einhver skuli storka samfélagslegum normum með þessum hætti og hvað þýðir það að þannig málflutningur fái hljómgrunn hjá hundruð þúsundum eða jafnvel milljónum víða um heim. Svo fjöllum við um pöndupólitík, en það má segja að pöndur séu krúttlegustu diplómatarnir. Talið er að pöndur í heiminum séu nú um 2.700. Þar af lifa nærri 2.000 villtar í Kína. Kínverjar hafa í áratugi stundað pöndupólitík, ef ríki vilji fá til sín pöndur þurfi þau að vera í góðum samskiptum við yfirvöld í Kína. Og Kínverjar kölluðu til sín tvær pöndur frá Japan í vikunni. Borgaryfirvöld í Tókýó hafa óskað eftir að fá aðrar pöndur í staðinn en þeirri beiðni hefur ekki verið svarað. Ætli svarið velti ekki á því hvernig samskipti Kína og Japans þróast á næstunni?
    31 January 2026, 12:40 pm
  • 43 minutes 30 seconds
    242 - Grænland, færeyska handboltaævintýrið og Beckham fjölskyldan
    Ítrekuð ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta um yfirtöku á Grænlandi hafa ekki aðeins valdið stjórnmálamönnum þar áhyggjum. Almenningur er líka uggandi, og þó að Trump hafi nú útilokað að beita valdi til að taka yfir Grænland er fólk enn í óvissu um framhaldið. Hallgrímur Indriðason fjallar um þetta en hann kom frá Grænlandi í síðustu viku. Hann segir okkur frá því hvernig Grænlendingum líður, talar við Grænlending sem býr hér á landi og Íslending sem býr á Grænlandi. Við tölum líka við handboltaþjálfara í Færeyjum sem segir okkur frá ótrúlegum uppgangi handboltans þar, en Færeyingar fjölmenntu til Osló þar sem landsliðið þeirra vann sinn fyrsta leik á stórmóti. Þeir komast ekki áfram í milliriðil en hátt í sjö þúsund Færeyingar fylgdu liðinu. Að lokum fjöllum við svo um drama í Beckham fjölskyldunni. Fjölskylduerjur fræga fólksins er nokkuð sem við höfum alla jafna skautað fram hjá í þessum þætti, en okkur langaði samt aðeins að staldra við, reyna að skýra hvað þarna er í gangi og kannski ekki síður af hverju allir stærstu fréttamiðlar heims eru að fjalla um þetta.
    24 January 2026, 12:40 pm
  • 44 minutes 22 seconds
    241 - Komandi kosningar og framhaldsmyndir
    Árið hófst með hvelli úti í heimi, en hvaða áhrif hafa atburðirnir á komandi kosningar? Kólumbíumenn kjósa á árinu, á meðan Trump reynir að styrkja ítök sín í Suður Ameríku og margir Evrópubúar horfa til kosninga í Ungverjalandi þar sem Viktor Orban hefur haldið um stjórnartauma í 15 ár. 2026 verður ár framhaldsmyndanna í bíó. Við rýnum í dagskrána með manni sem veit allt um Avengers heiminn og alla sem í honum búa og sjálfum Vidda úr Toy Story!
    17 January 2026, 12:40 pm
  • More Episodes? Get the App