Skagahraðlestin

Björn Þór Björnsson

Skagahraðlestin er hlaðvarpsþáttur framleiddur af stuðningsmönnum ÍA í knattspyrnu. Um borð í Skagahraðlestina munu koma ýmsir viðmælendur sem tengjast félaginu á einn eða annan hátt. Þátturinn hefur það að markmiði að allir geta haft gaman af, hvort sem fólk fylgist með knattspyrnu eður ei. Lítið verður rætt um nýaflokna leiki eða taktísk atriði en því meira um eftirminnileg atvik úr sögu félagsins og annað skemmtilegt sem tengist því.

  • 1 hour 23 minutes
    Teitur Þórðarson – Þjálfarinn
    Jólaþáttur Skagahraðlestarinnar 2023 er viðtal við Teit Þórðarson í tveimur hlutum. Í síðari hlutanum er fjallað um þjálfarann Teit Þórðarson. Þjálfaraferill Teits spannar rúm 30 ár þar sem hann þjálfaði í Svíþjóð, Noregi, Eistlandi, Íslandi, Kanada og næstum því í Indlandi. Ferillinn litaðist mjög af uppbyggingu liða þar sem Teitur valdi ekki alltaf einföldustu leiðina.
    27 December 2023, 5:38 pm
  • 1 hour 26 minutes
    Teitur Þórðarson – Leikmaðurinn
    Jólaþáttur Skagahraðlestarinnar 2023 er viðtal við Teit Þórðarson í tveimur hlutum. Í fyrri hlutanum er fjallað um leikmanninn Teit Þórðarson og í þeim síðari þjálfarann. Leikmannaferill Teits er fyrir margt merkilegur. Hann átti sér þann draum frá því hann var ungur drengur að spila í atvinnumennsku erlendis. Hann sótti það hart að komast út en […]
    18 December 2023, 8:45 pm
  • 1 hour 47 seconds
    Fleiri örsögur
    Við höldum áfram að segja örsögur úr sögu ÍA líkt og í síðasta þætti. Fjallað verður um umdeildan Íslandsmeistaratitil árið 1958, dómaraleikinn fræga árið 1992 og Bjarnamarkið svo eitthvað sé nefnt. Viðmælendur: Sturlaugur Haraldsson og Andri Júlíusson.
    11 November 2020, 4:36 pm
  • 54 minutes 40 seconds
    Örsögur
    ÍA hefur verið í fremstu röð í íslenskri knattspyrnu í 70 ár.  Á ýmsu hefur gengið en viðfangsefni þáttarins eru nokkur einkennileg mál í sögu félagsins. Svaðilför á sjó, ólöglegir leikmenn og fleira. Viðmælendur: Hörður Helgason, Steindóra Steinsdóttir og Sturlaugur Haraldsson.
    2 October 2020, 12:15 pm
  • 1 hour 22 minutes
    George Kirby
    George Kirby hafði mikil áhrif á knattspyrnuna á Akranesi. Hann gerði Skagamenn að Íslandsmeisturum 1974, 1975 og 1977 og að bikarmeisturum 1978 og 1982. Ferli hans hjá ÍA lauk þá á sorglegan hátt þegar ÍA féll úr efstu deild árið 1990. Í þættinum kynnumst við Kirby, hverju hann breytti á Skaganum og hvers vegna hann […]
    23 July 2020, 2:31 pm
  • 1 hour 4 minutes
    Bikarbullið
    Árið 1997 fór fram afar einkennilegur leikur í 32-liða úrslitum bikarkeppninnar. Viðmælendur: Steinar Adolfsson, Pálmi Haraldsson, Ellert Jón Björnsson, Hjálmur Dór Hjálmsson, Jóhannes Gíslason og Sæmundur Víglundsson.
    10 July 2020, 4:16 pm
  • 1 hour 11 minutes
    Bakarinn – Seinni hluti
    Bakarinn, Gunnar Sigurðsson, var í forystu knattspyrnunnar á Akranesi hátt í þrjátíu ár. Það gekk á ýmsu á þessum tíma en það hefur gustað um Gunnar alla tíð og hann hefur verið umdeildur. Í viðtalinu verða hæðir og lægðir hans á ferlinum ræddar. Þátturinn er í boði Íslandsbanka á Akranesi
    26 June 2020, 11:15 pm
  • 1 hour 14 minutes
    Bakarinn – Fyrri hluti
    Bakarinn, Gunnar Sigurðsson, var í forystu knattspyrnunnar á Akranesi hátt í þrjátíu ár. Það gekk á ýmsu á þessum tíma en það hefur gustað um Gunnar alla tíð og hann hefur verið umdeildur. Í viðtalinu verða hæðir og lægðir hans á ferlinum ræddar.  Þátturinn er í boði Fasteignasölunnar Hákots.
    13 June 2020, 8:07 pm
  • 32 minutes 57 seconds
    Uppgjör
    Í þættinum fyrir síðasta heimaleik Skagans er knattspyrnuárið gert upp á skemmtilegan hátt. Reynt verður að fanga stemninguna í kringum liðið og stiklað á því helsta sem gekk á.
    27 September 2019, 4:38 pm
  • 1 hour 11 minutes
    Minningar
    Í níunda þætti Skagahraðlestarinnar fengum við þrjá Skagamenn, þau Hörð Helgason, Ellu Maríu Gunnarsdóttur og Sverri Mar Smárason til að segja okkur frá sínum eftirminnilegustu minningum tengdum Knattspyrnufélagi ÍA.
    16 September 2019, 4:49 pm
  • 1 hour 7 minutes
    Laufey Sigurðardóttir
    Í áttunda þætti Skagahraðlestarinnar settist Laufey Sigurðardóttir um borð og gerði upp stórmerkilegan feril sinn.
    10 August 2019, 7:58 pm
  • More Episodes? Get the App