• 45 minutes 8 seconds
    #74 Totally eclipse of Hlaupalíf


    Hlaupalíf keyrir af stað afmælisvikuna með brakandi ferskum þætti. Tökum stöðuna á road2Berlin, erum við að trust the process, vangaveltur um langatúrinn sem reynir vel á hausinn, vlog-ið hjá Andreu Kolb., sólmyrkrinn og margt margt fleira!

    15 August 2026, 10:14 pm
  • 49 minutes 47 seconds
    #73 Að loknu sumarfríi og fyrsti þriðjungur í MÞ prógramminu DÖNN 🫡😎

    .

    Umfjöllunarefni:

    *Elin Edda að hamra Súlur

    *Berlín þokast nær og nær

    *Frammistöðukvíði

    *Næring í löngu túrunum

    *Sumafrí fjölskyldunnar ‘26 og lífið almennt

    4 August 2026, 8:16 pm
  • 43 minutes 39 seconds
    #72 Í endorfínvímu

    Hlaupalíf heldur áfram umfjöllun um Road to Berlin’26. Erum að ljúka þriðju æfingavikunni í Run Less Run Faster prógramminu og förum yfir hvernig það hefur gengið. Eru æfingar á Air Runner too good to be true? Endorfínvíma eftir æfingar er aðeins of góð (og ávanabindandi). Fjölskyldulífið í fríi með þrjú börn. Bubbi, Eminem o.fl.ofl.

    23 July 2026, 12:29 pm
  • 43 minutes 57 seconds
    #71 Road 2 Berlín! 🫡

    Hlaupalíf orðin fimm manna fjölskylda. Ekki lengur maður á mann og við að hefja 12 vikna æfingablokk fyrir Berlínarmaraþonið í sept’ 26! Við förum yfir óhefðbundna nálgun okkar að maraþonundirbúningi og ætlum að leyfa ykkur að fylgjast með næstu misserin. Stay tuned!

    1 July 2026, 9:40 pm
  • 47 minutes 54 seconds
    #70 Sumardagurinn fyrsti nálgast ☀️🙏


    Við gáfum okkur loksins tíma í almennilegt Hlaupalíf deit sem er hægara sagt en gert þessa dagana! Elín Edda er hægt og rólega að komast á steypirinn og orkan ekki jafn mikil, en styttist í sumardaginn fyrsta = settur dagur. Við ræddum komandi verkefni, en Vilhjálmur keppir á Hyroxmóti í CPH um miðjan mars og svo verður það Berlínarmaraþonið 2026 = fertugsáskorun Vilhjálms! Fórum yfir íslensku tækninýjungina Tymewear og verður gaman að fylgjast með því hvort þetta verði næsta byltingin fyrir þolíþróttafólk. Svo var það nýr liður: Uppskriftahorn HH. 

    Þátturinn er í boði: Hreysti, Sportvörur og Optical Studio

    Minnum á afsláttarkóðann “Hlaupalif10” á bætiefnum og æfingateygjum hjá Hreysti.

    28 February 2026, 1:40 pm
  • 1 hour 8 minutes
    #69 Hlaupalíf stefnumót í upphafi árs 🤝🙏

    2026: nýtt hlaupalífár og kósýmánuður ársins mættur! :)


    Við ungbarna-hlaupa-foreldrarnir drógum fram hljóðnemana og fórum yfir hlaupatópíkin þessi misserin. Gamlárshlaupið, Nýárshlaup Ultraform, komand vetrarhlaup og vor-hlaupin auðvitað.


    Þá dustuðum við rykið af sturluðum hlaupastaðreyndum og að lokum slógum við á þráðinn til Elísu Kristinsdóttur sem átti ótrúlegt hlaupaár, en hún er stödd í miðri æfingaferð á Tenerife, og gerði upp hlaupaárið sitt og komandi markmið.


    Við verðum að viðurkenna að við værum ekkert á móti því að vera á Tene núna, enda sitjum við í Hlaupalíf með tebolla og ullarsokka að reyna halda okkur hita í þessum norðan garra!


    Þátturinn er í boði Hreysti, Sportvörur og Optical Studio.

    9 January 2026, 10:23 pm
  • 57 minutes 15 seconds
    #68 Aðventuþáttur 🎄🧑‍🎄

    Aðventan og nýr þáttur hjá Hlaupalíf. Enda var kominn tími á að við skutuhjúin settumst niður og ræddum hitt og þetta í hlaupalífinu og bara lífinu almennt.

    Umræðupunktar:


    * Jólaspenningur. Eflaust meiri hjá foreldrum en börnunum.

    * Hlaupalífið og hreyfi-rútínan þessi misserin með tvö börn (og þriðja á leiðinni!)

    * Maraþon-deit-pælingar fyrir haustið 2026.

    * Valencia maraþonið.

    * Ástandsskoðun @Sjúkrasport.

    …..og margt margt fleira.



    Þátturinn er í boði Hreysti, Sportvörur og Optical Studio.

    7 December 2025, 10:10 pm
  • 1 hour 26 minutes
    #67 Hafsteinn Óskarsson segir öldungum að hlaupa hraðar! 🏃🏼‍♀️‍➡️

    Hafsteinn Óskarsson er hlaupari á heimsmælikvarða sem nældi sér í evrópumeistaratitil í 800m á EM masters utanhúss á dögunum og silfur verðlaun í 800m á heimsmeistaramóti innanhús fyrr á þessu ári! Hann lætur aldurinn alls ekki stöðva sig heldur þvert á móti þá heldur hann áfram að æfa og keppa líkt og hann gerði þegar hann var að stíga sín fyrstu skref í hlaupunum fyrir um 50 árum síðan. Ef það er eitthvað sem við hlauparar gætum tekið til okkar frá þessari flottu fyrirmynd þá er það að vera óhrædd við að mæta á brautina, halda áfram að hlaupa hratt fram eftir öllum aldri, eyða aðeins minni tíma í junk miles og meiri tíma í styrk, drillur og allt þar fram eftir götunum.

    Kæru vinir, þið eruð up for a treat!

    Þátturinn er í boði Sportvörur, Hreysti og Optical Studio

    11 November 2025, 11:11 am
  • 1 hour 7 minutes
    #66 DNF á HM í utanvegahlaupum 🫣

    Hvernig er að standa frammi fyrir stórum verkefnum eins og að fjölga mannkyninu og vera með stór markmið í hlaupunum….á sama tíma?


    Við ræddum þessa stóru lífsins áskorun og hvernig við tókum meðvitaða ákvörðun hvernig við myndum tækla hana með okkar reynslu.


    Við áttum einnig létt spall um ýmislegt sem hefur verið á döfinni í hlaupaheiminum s.s:

    • ​Chicago maraþonið og önnur stór maraþon á döfinni
    • ​Slógum á þráðinn til Ósk Gunnarsd sem fékk bónorð í maraþoni!
    • ​Hjólastígar á Íslandi
    • ​Magavandamál Andreu Kolbeinsd.
    • ​Hyrox og hlaup
    • ​Arnar P vs. Þorsteinn R og ýmislegt fleira.


    Þátturinn er í boði Hreysti, Sportvörur og Optical Studio. Þess ber að geta að hlustendur fá 10% afslátt af fæðubótarefnum og æfingarteygjum í Hreysti með kóðanum “Hlaupalif10”.


    22 October 2025, 8:05 pm
  • 1 hour 43 minutes
    #65 Hildur hlaupahvíslari

    Í þætti vikunnar tökum við fyrir umræðu sem er nauðsynleg og mikilvæg, en nennum ekki alltaf að hugsa of mikið um: hlaupaeymsli, hlaupameiðsli, fyrirbyggjandi aðferðir, hlaupamýtur og allt þar á milli.


    Til að hjálpa okkur að greina þetta umfjöllunarefni fengum við í settið einn öflugasta sjúkraþjálfara hér á landi, Hildi Kristínu Sveinsdóttur sjúkraþjálfara og framkvæmdastjóra Sjúkrasport, betur þekkt sem Hildur Hlaupahvíslari.


    Hún hefur áralanga reynslu af meðferð við eymslum og meiðslum hlaupara á öllum getustigum og mun hjálpa okkur að ræða þetta þarfa umfjöllunarefni á meðal okkar hlaupara og koma svo hugsanlega og vonandi með einhver hagnýt ráð sem þið getið nýtt ykkur til að viðhalda heilbrigðum og meiðslalausum lífsstíl - því ekki má gleyma mottói mottóanna í hlaupasenunni; consistency is key og þá er auðvitað best að glíma við sem minnst af meiðslum.


    Þátturinn er í boði Optical Studio og Sportvörur.

    6 October 2025, 10:04 pm
  • 39 minutes 59 seconds
    #64 Anna Berglind að loknu HM í utanvegahlaupum 🏃‍♀️

    Ofurhlauparinn Anna Berglind settist niður með Elínu Eddu á svölunum á Candanchu hótelinu með útsýni yfir Pýranafjöllin - þar sem Anna Berglind var einmitt að keppa með íslenska landsliðinu. Þar kom Anna fyrst ísl kvenna í mark á frábærum tíma við krefjandi aðstæður.


    Við fáum smá innsýn inn í hlaupalífið hjá þessari flottu hlaupakonu sem hefur náð ótrúlegum framförum á undanförnum árum og er í bætingafasa 46 ára gömul! Geri aðrir betur!

    27 September 2025, 6:44 pm
  • More Episodes? Get the App