Koma svo!

Podcaststöðin

Pepp fyrir foreldra, fagfólk og aðra sem hafa áhuga á málefnum barna og ungmenna

  • 1 hour 7 minutes
    Koma svo! - Þegar lífið tekur u beygju!

    Í fjórða þætti, þriðja tímabils Koma svo! er rætt við Sigríði Arndísi Jóhannsdóttur, verkefnastjóra hjá Þjónustumiðstöð Vesturbæjar,  Miðborgar og Hlíðar hjá Reykjavíkurborg. Einnig er hún varaborgarfulltrúi þar sem hún situr í nokkrum ráðum á vegum borgarinnar.  Verkefnin voru mörg, margir boltar voru á lofti og eins og með svo marga þá labbaði Sigríður Arndís á vegg.

    22 January 2021, 12:06 am
  • 1 hour 22 minutes
    Koma svo! - Að hámarka lífsgæðin, er það flókið?

    Í þriðja þætti, þriðja tímabils Koma svo! er rætt við Ragnheiði Agnarsdóttur. B.A. í sálfræði og M.A. í mannauðsstjórnun. Þegar Ragnheiður var búin að vera 16 ár í atvinnulífinu, upplifa makamissi og fara á hnefanum eins og okkur Íslendingum er svo tamt að gera, fóru hugsanir að gerjast um lífið og tilveruna. Á að fara í gegnum lífið á 100 km. hraða og aldrei að njóta stundarinnar? Ragnheiður fór að skoða á hverju grunnurinn að lífsgæðum okkar byggist og komst að því að þetta er ekki flókið. Við þurfum að hlúa að okkur sjálfum!


    9 December 2020, 11:52 am
  • 1 hour 13 minutes
    Koma svo! - Tengslarof, feluleikur og upprisa
    Í öðrum þætti, þriðja tímabils Koma svo! er rætt við Sigurð Hólmar Karlsson, áfengis- og vímuefnaráðgjafa. Líf Sigurðar er efni í heila bók svo ekki meira sé sagt. Glíman við afleiðingar tengslarofs og áfengis- og vímuefnaneyslu hefur sett svip sinn á líf hans. Við þetta bætist svo felurleikur sem margir hafa glímt við og falið, samkynhneigð!
    17 October 2020, 5:13 pm
  • 1 hour 5 minutes
    Koma svo! - Dastu á hausinn Magnús?

    Í þessum fyrsta þætti, þriðja tímabils Koma svo! er rætt við Magnús Sigurjón Guðmundsson, betur þekktan sem Maggi Pera. Magnús er tómstunda- og félagsmálafræðingur og hefur unnið lengi með unglingum. Hann söðlaði um í febrúar 2020 þegar hann hóf störf hjá Póstinum á Selfossi en áður af því varð rann Magnús til í hálku og höfuðkúpubrotnaði. 

    30 September 2020, 9:03 pm
  • 1 hour 54 minutes
    Koma svo! - Virkar að sleikja spínatblað?

    Í þrítugasta og fimmta þætti Koma svo! er rætt við Ragnhildi Þórðardóttur, sálfræðing með áherslu á heilsusálfræði og einnig lærðan einkaþjálfara. Hún er þekkt undir nafninu Ragga nagli, býr í Danmörku og hefur boðið upp á sálfræðimeðferð og fjarþjálfun síðustu ár. Þar er unnið  með hugsanir og hugarfar (í bland við þjálfun sé þess óskað) til að auka líkurnar á varanlegum lífsstílsbreytingum. En hvað mótaði naglann? 

    28 June 2020, 7:53 pm
  • 1 hour 33 minutes
    Koma svo! - Jógvan eða Jógvan, það er spurningin!

    Í þrítugasta og fjórða þætti Koma svo! er rætt við Jógvan Hansen söngvara / tónlistarmann / hárgreiðslumann / eiginmann / föður.  Færeyingurinn hugljúfi er einn ástsælasti söngvari Íslands og skyldi engan undra. En hvaða mann hefur hann að geyma? Eru Færeyingar mikið öðruvísi en við Íslendingar?

    23 May 2020, 9:39 am
  • 1 hour 24 minutes
    Koma svo! - Hamingjuhornið
    Í þrítugasta og þriðja þætti Koma svo! er rætt við Önnu Lóu Ólafsdóttur, kennara, náms- og starfsráðgjafa og er með diplóma í sálgæslu á meistarastigi.  Hún byrjaði að skrifa pistla og birti á netsíðu og Facebook undir nafninu Hamingjuhornið. Pistlarnir náðu mikilli útbreiðslu og þóttu bæði fróðlegir og skemmtilegir og innihéldu þætti sem snéru að samskiptum, persónulegum áskorunum og leyndardómum lífsins. Nýlega gaf Anna Lóa út bókina "Það sem ég hef lært"  þar sem hún deilir hluta af því sem hún hefur skrifað og jafnframt lært og skrifað um hamingjuna, sorgina, sambönd, breytingar, sjálfstraust, kvíða ofl. En hvernig lærði Anna Lóa það sem hún hefur lært?
    16 May 2020, 9:19 am
  • 1 hour 43 minutes
    Koma svo! - Óvænt nýsköpun í félagsmiðstöðvastarfi
    Í þrítugasta og öðrum þætti Koma svo! er rætt við Stefán Gunnar Sigurðsson forstöðumann félagsmiðstöðvarinnar Frosta um þær áskoranir sem Covid-19 höfðu á starf félagsmiðstöðva á Íslandi. Eftir að samkomubanni var komið á voru góð ráð dýr fyrir starf félagsmiðstöðva. Starfsmenn þurftu, á skömmum tíma, að finna út hvernig hægt væri að ná til unglinga með því að nota hina ýmsu samfélags- og netmiðla. "Neyðin kennir naktri konu að spinna" segir máltækið og það má með sanni segja að starfsmenn félagsmiðstöðva spunnu hratt lausnir til að mæta unglingum landsins.
    25 April 2020, 7:30 am
  • 1 hour 43 minutes
    Koma svo! - Fátt er svo með öllu illt...
    Í þrítugasta og fyrsta þætti Koma svo! er rætt við Bergsvein Ólafsson, sem er með BSc í sálfræði og í mastersnámi í jákvæðri- og þjálfunarsálfræði, um vinnuna með fjölbreyttum einstaklingum og hópum við persónuleg, félagsleg og fagleg markmið. Hugmyndafræði hans byggir að mestu leyti á sálfræði, persónulegri reynslu og stöðugri þróun. Hvenær og af hverju byrjaði hann að velta fyrir sér persónulegum vexti? Hvað er það sem Bergsveinn elskar og gefur honum tilgang?
    4 April 2020, 1:05 pm
  • 1 hour 26 minutes
    Koma svo! - Þungarokk og töfrar
    Í þrítugasta þætti Koma svo! er rætt við Ingólf Hjálmar Ragnarsson Geirdal, gítarleikara og töframann, um nördisma, lífið og tilveruna. Hvað kom á undan, þungarokkið eða töfrarnir? Hvað er það sem drífur hann áfram, áræðni, seigla eða þrjóska? 
    28 March 2020, 9:07 am
  • 1 hour 23 minutes
    Koma svo! - Verndum þau
    Í tuttugasta og níunda þætti Koma svo! er rætt við Þorbjörgu Sveinsdóttur sálfræðing, sem starfar í Barnahúsi og hefur mikla reynslu af barnaverndarmálum. Hún, ásamt Ólöfu Ástu Farestveit uppeldis- og afbrotafræðing, skrifaði bókina "Verndum þau" sem fjallar um skyldur og ábyrgð þeirra sem starfa með börnum og unglingum. Í bókinni eru lesendur upplýstir um eðli og birtingarmyndir ofbeldis og vanrækslu, ferli mála af því tagi hjá barnaverndaryfirvöldum og innan dómskerfisins. 
    21 March 2020, 8:50 am
  • More Episodes? Get the App